Fótaaðgerð er löggild heilbrigðisstétt og gefur Embætti Landlæknis út starfsleyfi.
Fótaaðgerð er meðferð á fótameinum fyrir neðan ökkla, þ.e. á yfirborði húðar og tánöglum.
Í starfi fótaaðgerðafræðinga felst:
• skoðun á hreyfigetu og álag á fætur, ástand húðar og nagla metin.
• klipping og þynning tánagla
• fjarlægt sigg og líkþorn
• vörtumeðferð
• meðferð á inngrónum tánöglum m.a. með stál- eða plastspöngum
• sérhæfð meðferð á fótum sykursjúkra: húðin skoðuð, hreyfigeta, mæling á tilfinningu, næmni, sársauka, blóðflæði, sárameðferð og ráðgjöf.
Ráðgjöf varðandi:
• fótaumhirðu
• barnafætur
• val á skóm og öðrum fótabún
• hugum að vellíðan og heilbrigði fótanna